sunnudagur, 16. október 2016

-Childs Farm | glútenfríar húð og hárvörur fyrir ungabörn og krakka-



Ég varð svo glöð þegar ég fann út að Childs Farm vörurnar eru glútenfríar og sérstaklega hannaðar fyrir litla viðkvæma exem kroppa.



Childs Farm er margverðlaunuð, bresk hreinlætislína sem notar eingöngu náttúruleg ‘laus við’ innihaldsefni og kjarnaolíur til þess að framleiða vörulínu af mildum og dásamlega ilmandi hreinlætisvörum sem fara vel með hár og húð ungbarna og krakka.

Sagan af því hvernig Childs Farm byrjaði er ótrúlega skemmtileg og er hægt að lesa hana inná síðunni þeirra HÉR.


Við hjónin eigum 5 ára kropp sem á það til að vera slæmur af exemi og er ég núna í smá tíma búin að vera að nota vörurnar og barnið er allt annað. Ég set hér myndir af þeim vörum sem ég á og get ég mælt með þeim öllum. Þetta eru lang lang lang bestu barna húðvörur sem ég hef prufað og ekki skemmir fyir hvað þær eru ótrúlega flottar. Lyktin af þeim er æðisleg og það sem ég hef tekið eftir að stráknum mínum finnst svo gaman að nota þetta því það er t.d traktor á einu glasinu. Hann elskar þetta og held ég persónulega að börnin séu besti dómarinn þegar kemur að vörum fyrir þau. Hann biður um að láta bera á sig rakakremið og alles. 



Vörurnar henta ungbörnum til eldri borgara og í raun öllum með viðkvæma húð. Childs Farm er milt og örrugt fyrir húðina og eru samþykktar af barnalæknum. Þær eru húðlæknisfræðilega prófaðar og samþykktar. 

Ef ykkur vantar t.d hugmynd að fæðingargjöf er hægt að versla ungbarnalínu í fallegri gjafaöskju. Ungbarna línan er sérstaklega hönnuð fyrir kvöldrútínu barnsins. 

Það sem mér þótti ótrúlega mikilvægt þegar ég var með mína mola litla var að vera með ákveðna rútínu alltaf fyrir nóttina. Lítil kríli elska rútínu og þannig læra þau að þekkja munin á t.d dag og nótt ef rútínan fyrir nóttina er nánast alltaf sú sama. Bað fyrir nóttina kemur þeim í ákveðin ryðma og þau fara ansi fljótt að átta sig á að baðið tengist svefninum og þau byrja að slaka á og undirbúa sig sjálf fyrir svefninn.


Þegar þú ert búin að baða barnið í ca 37-38° gráðu heitu vatninu sem er fullkominn hiti fyrir ungabarnið er gott að þurka því vel og og nudda það með góðu rakakremi.

Ég mæli klárlega með þessu æðislega setti fyrir nýbakaða foreldra til að auðvelda þeim og barninu að tileinka sér góða rútínu fyrir nóttina og vonandi meiri svefn fyrir alla aðila.

Vörurnar er hægt að nálgæst í mörgum apótekum t.d Apótekinu Setbergi, Krónunni í Hafnarfirði og fleiri stöðum. 
Heima síða Childs Farm á Íslandi er HÉR.
Facbook síða Childs Farm á Íslandi er HÉR



Engin ummæli :

Skrifa ummæli

Blog Design by Get Polished